Öflugt teymi
Allir starfsmenn Xprent eru þjálfaðir af fagmanni. Einkunnarorð okkar eru „gæði umfram hraða“.
Hönnun, prentun og merkingar frá 2010.

Xprent hóf starfsemi 1. september 2010. Síðan þá hefur fyrirtækið vaxið og dafnað og tekur að sér flestöll prent- og merkingarverkefni.
Þegar þig vantar inni- og útimerkingar, prentun, filmuskurð, strigaprentun, ljósmyndaprentun, gluggamerkingar, bílamerkingar eða grafíska hönnun, þá gætir þú fundið lausnina hjá okkur. Verslanir, fyrirtæki og einstaklingar geta nýtt sér alla þá þjónustu sem við bjóðum, til dæmis skurð á veggi og glugga, markaðsefni og jafnvel heilu veggmerkingarnar.
Allir starfsmenn Xprent eru þjálfaðir af fagmanni. Einkunnarorð okkar eru „gæði umfram hraða“.
Xprent býður upp á faglega þjónustu og er með áratuga reynslu. Starfsmenn Xprent hafa unnið hjá öðrum skiltagerðum, eru með mikla reynslu og leggja sig fram við ráðgjöf og persónulega þjónustu.
Við tökum að okkur heildarlausnir fyrir bæði stór og lítil fyrirtæki, frá hugmynd að uppsetningu.

Við hlustum, skoðum aðstæður og ráðleggjum um efni og útfærslu. Við getum mætt á staðinn og tekið verkið út.
Grafískur hönnuður Xprent útfærir hugmyndina, eða við vinnum út frá þínu efni.
Prentun, risaprentun, filmuskurður, upplíming á ál-, PVC- og plexíplötur, plöstun og skiltasmíði.
Við setjum upp og tökum niður flestar merkingar. Ef verkið kallar á körfubíl, þá reddum við því.